Stefnumál L-Listans
Við viljum láta gott af okkur leiða með samfélagið í fyrrirúmi
Markmið listans er að efla Þingeyjarsveit til framtíðar með aukinni atvinnuuppbyggingu, fjölgun íbúa – sérstaklega barnafjölskyldna – og sterkari innviðum.
Áhersla er lögð á ábyrga og stöðuga stjórnsýslu
og jákvætt samstarf. L-Listinn vill styrkja samfélagið í heild sinni með því að styðja við atvinnulíf, bæta aðgengi að húsnæði, efla skóla- og íþróttastarf og tryggja að náttúra og lífsgæði íbúa haldist í forgrunni.
Við trúum á tækifærin, samstöðuna og kraftinn í fólkinu – og viljum byggja upp enn sterkara samfélag fyrir alla íbúa Þingeyjarsveitar.

Lykiláherslur L-listans
Atvinnuuppbygging
Auka framboð atvinnu- og þjónustulóða, styðja við nýsköpun, efla lykilgreinar og störf án staðsetningar. Ætlum að taka jákvætt í hugmyndir íbúa um atvinnuuppbyggingu.
Fjölgun íbúa og húsnæðismál
Móta stefnu um og skipuleggja framtíðar uppbyggingu þéttbýlis í sveitarfélaginu. Skapa hagstæðari skilyrði til nýbygginga hvort heldur sem er í þéttbýli eða dreifbýli.
Ábyrg stjórnsýsla
Sterk og stöðug stjórnsýsla, með öflugan sveitarstjóra í fararbroddi og ábyrga meðferð fjármála.
Sterkari innviðir
Bæta grunnþjónustu sveitarfélagsins, aðgengi að heilbrigðisþjónustu, berjast fyrir fækkun malarvega, bæta veitukerfi, stuðla að aukinni orkuöflun og þrýsta á uppbyggingu brúa.
Skólar sveitarfélagsins
Auka samstarf og samkennslu milli grunnskóla, efla menntun og tryggja jafnt aðgengi barna að góðu skólastarfi.
Íþrótta- og tómstundamál
Íþrótta- og æskulýðsstarf er grunnstoð samfélagsins. Efla þarf aðstöðu félaga, styrkja rekstur þeirra, styðja við hreyfingu og félagsstarf fyrir fólk á öllum aldri.
Sterkara samfélag og samstaða
Sameinum samfélagið, byggjum upp eitt sterkt samfélag þar sem allir hafa rödd.
Nýting og vernd náttúru
„Verndum til að njóta.“ Göngum af virðingu um náttúruna og tryggjum íbúum aðgengi að henni.
Jákvæð uppbygging og samstarf
Stuðla að góðu samstarfi við íbúa, fyrirtæki og stjórnvöld - engin vandamál, bara lausnir
Betri nýting eigna og fleiri samverustaðir
Koma þarf meira lífi í fasteignir sveitarfélagsins og nýta þær betur fyrir starfsemi, samveru og atvinnu.
Ítarefni
væntanlegt