Stefnumál L-Listans
Við viljum láta gott af okkur leiða með samfélagið í fyrrirúmi
Markmið listans er að efla Þingeyjarsveit til framtíðar með aukinni atvinnuuppbyggingu, fjölgun íbúa, sérstaklega barnafjölskyldna, og sterkari innviðum.
Áhersla er lögð á ábyrga og stöðuga stjórnsýslu
og jákvætt samstarf. L-Listinn vill styrkja samfélagið í heild sinni með því að styðja við atvinnulíf, bæta aðgengi að húsnæði, efla skóla- og íþróttastarf og tryggja að náttúra og lífsgæði íbúa haldist í forgrunni.
Við trúum á tækifærin, samstöðuna og kraftinn í fólkinu – og viljum byggja upp enn sterkara samfélag fyrir alla íbúa Þingeyjarsveitar.


L-listi framfara er borgaralegt framfarasinnað framboð sem vill efla atvinnulíf, fjölga íbúum og byggja upp sterkara, sameinað og líflegra samfélag í allri Þingeyjarsveit.Við trúum á ábyrg vinnubrögð, jákvætt viðmót og raunhæfar lausnir.
Okkar leiðarljós er einfalt: Engin vandamál – bara lausnir.
Stefnuskrá
L-listi framfara er borgaralegt framfarasinnað framboð sem vill efla atvinnulíf, fjölga íbúum og byggja upp sterkara, sameinað og líflegra samfélag í allri Þingeyjarsveit.
1. Atvinnulíf og nýsköpun
Öflugt atvinnulíf er ein mikilvægasta forsenda þess að sveitarfélagið geti veitt góða þjónustu, fjölgað íbúum og skapað tækifæri fyrir komandi kynslóðir. Þingeyjarsveit býr yfir miklum styrkleikum í landbúnaði, ferðaþjónustu, menningu, orkumálum og nýsköpun. Við viljum skapa umhverfi þar sem fólk og fyrirtæki fá svigrúm til að vaxa.
Aðgerðaáætlun:
-
Fjölga atvinnu- og þjónustulóðum vítt og breitt um sveitarfélagið.
-
Styðja við landbúnað, ferðaþjónustu, menningu og nýsköpun.
-
Nýta betur húsnæði sveitarfélagsins fyrir atvinnustarfsemi og störf án staðsetningar.
-
Markaðssetja Þingeyjarsveit sem eftirsóknarverðan stað til að búa, starfa og reka fyrirtæki.
-
Skoða fasteignagjöld og önnur gjöld með það að markmiði að hvetja til uppbyggingar.
2. Fjölgun íbúa og húsnæðismál
Við viljum að Þingeyjarsveit verði raunverulegur valkostur fyrir fjölskyldur, ungt fólk, frumkvöðla og þau sem vilja byggja sér framtíð í sterku samfélagi. Til þess þarf að fjölga íbúðalóðum, einfalda uppbyggingu og skapa skýrari hvata fyrir fólk til að setjast hér að.
Aðgerðaáætlun:
-
Fjölga íbúðalóðum í þéttbýli og dreifbýli.
-
Móta skýra stefnu um framtíðaruppbyggingu byggðakjarna.
-
Skoða tímabundna lækkun eða niðurfellingu gatnagerðargjalda á völdum svæðum.
-
Hvetja til endurbóta og nýtingar eldri húsa.
-
Leita leiða til að lækka kostnað fólks við að koma sér upp húsnæði.
3. Skólar, börn og fjölskyldur
Börn og fjölskyldur eru dýrmætasta auðlind sveitarfélagsins. Þingeyjarsveit er samfélag þar sem börn fá góða menntun, öruggt umhverfi og jöfn tækifæri til að vaxa og dafna. Við viljum efla skólana okkar með auknu samstarfi.
Aðgerðaáætlun:
-
Auka samstarf grunnskóla, sérstaklega á unglingastigi.
-
Efla samkennslu, samveru og faglegt samstarf milli skóla.
-
Tryggja jafnt aðgengi barna að góðu skólastarfi óháð búsetu.
-
Leikskólabörnum standi til boða að fara með skólabíl, þar sem það á við.
-
Styðja við öflugt leikskólastarf og fjölskylduvæna þjónustu.
4. Íþrótta-, æskulýðs- og tómstundamál
Íþrótta- og æskulýðsstarf er grunnstoð í heilbrigðu samfélagi. Þar verða til vináttubönd, sjálfstraust og sterkari tengsl við heimabyggðina. Við viljum að börn, ungmenni, fullorðnir og eldri borgarar hafi aðgang að fjölbreyttu félags- og tómstundastarfi.
Aðgerðaáætlun:
-
Efla aðstöðu íþrótta- og ungmennafélaga.
-
Setja aukið fjármagn í viðhald á íþróttamannvirkjum.
-
Styrkja rekstrargrundvöll félaga í sveitarfélaginu.
-
Auka framboð félagsmiðstöðva og skipulagðs ungmennastarfs.
-
Styðja við hreyfingu og lýðheilsu fyrir alla aldurshópa.
-
Tryggja eldri borgurum fjölbreytt félagsstarf, samastaði og afþreyingu.
5. Ábyrg stjórnsýsla og fjármál
Sveitarfélag fer með almannafé og því þarf að sýna ábyrgð, festu og skýra forgangsröðun. Við viljum sterka, stöðuga og faglega stjórnsýslu þar sem ákvarðanir eru teknar með hagsmuni íbúa að leiðarljósi.
Aðgerðaáætlun:
-
Viðhalda stöðugri stjórnsýslu.
-
Leggja áherslu á ábyrga meðferð fjármuna.
-
Ná festu í rekstri sveitarfélagsins.
-
Sýna aðhald í útgjöldum og greiða niður skuldir þegar svigrúm skapast.
-
Tryggja gott aðgengi að upplýsingum.
6. Innviðir, samgöngur og orkumál
Sterkir innviðir eru grunnurinn að góðri búsetu, öflugu atvinnulífi og öruggu samfélagi. Við ætlum að vinna markvisst að bættum vegum, öruggari veitum, betri orkumálum og sterkari tengingum innan sveitarfélagsins. Við viljum byggja upp innviði með langtímahugsun, ábyrgð og raunhæfum skrefum.
Aðgerðaáætlun:
-
Bæta vatns- og hitaveitur þar sem þörf er á.
-
Leita lausna fyrir köld svæði, meðal annars með varmadælum og lægri orkukostnaði.
-
Styðja ábyrga orkuöflun.
-
Þingeyjarsveit er landmesta sveitarfélag Íslands, virkt samtal við stjórnvöld og vegagerðina er forgangsmál.
-
Þrýsta á bætt viðhald vega í sveitarfélaginu, fækkun malarvega og einbreiðra brúa.
-
Vinna að uppbyggingu Bárðardalsvegar/Aldeyjarfossvegar.
-
Mótmæla skerðingu á samgönguleiðum, svo sem Engidalsvegi.
-
Ný brú yfir Skjálfandafljót í Kinn er forgangsverkefni.
-
Bætt umferðaröryggi.
-
7. Betri nýting eigna sveitarfélagsins
Sveitarfélagið á eignir sem geta nýst betur fyrir íbúa, félagasamtök, atvinnulíf og menningu. Við viljum koma meira lífi í húsin og tryggja að eignir sveitarfélagsins þjóni samfélaginu með skýrum hætti.
Aðgerðaáætlun:
-
Kortleggja nýtingu félagsheimila og annarra eigna.
-
Skapa aðstöðu fyrir störf án staðsetningar víðsvegar um sveitarfélagið.
-
Nýta félagsheimili betur fyrir viðburði, menningu, samveru og atvinnu.
8. Náttúra, umhverfi og aðgengi
Náttúran er ein stærsta auðlind Þingeyjarsveitar. Við viljum vernda hana, en jafnframt tryggja að íbúar geti notið hennar. Okkar nálgun er: Verndum til að njóta.
Aðgerðaáætlun:
-
Tryggja gott aðgengi íbúa að náttúruperlum innan sveitarfélagsins.
-
Leggja áherslu á jafnvægi milli verndar og nýtingar.
-
Skilgreina og efla útivistarsvæði þar sem það á við.
-
Styðja við ábyrga ferðaþjónustu sem ber virðingu fyrir náttúru og samfélagi.
-
Stjórnunar- og verndaráætlun Mývatns og Laxár er til endurskoðunar á kjörtímabilinu. Við ætlum að taka virkan þátt í þeirri vinnu.
9. Samfélag, samstaða og þátttaka
Sameining sveitarfélagsins þarf að verða raunveruleg í hjörtum og daglegu lífi íbúa. Við viljum byggja upp eitt sterkt samfélag þar sem öll hafa rödd, hvort sem þau búa í þéttbýli eða dreifbýli, eru ungir eða eldri, nýfluttir eða rótgrónir íbúar.
Aðgerðaáætlun:
-
Efla samráð við íbúa um allt sveitarfélagið.
-
Stofna enskumælandi ráð til að rödd íbúa af erlendum uppruna skili sér.
-
Efla ungmennaráð og öldungaráð.
-
Styðja við menningu, félagslíf og viðburði í öllu sveitarfélaginu.
10. Velferðarmál
Velferðarþjónusta er einn af stærstu þáttum hvers sveitarfélags og Þingeyjarsveit hefur í áranna rás verið með þjónustusamning við Norðurþing til að sinna lögbundnu hlutverki sveitarfélaga. Við ætlum að tryggja að Þingeyjarsveit sé samfélag þar sem öll geta búið langri og farsælli ævi við góð lífsgæði, virkni og öryggi – fatlaðir, aldraðir og þau sem þurfa fjölþætta þjónustu.
Aðgerðaáætlun:
-
Greina umfang þjónustunnar, skoða grundvöll nýrra þjónustuleiða og tryggja að ábyrgð og verkaskipting sé skýr á milli samningsaðila.
-
Tryggja framgang þess að HSN geti aukið þjónustustig á Laugum, t.d. hvað varðar læknastofu og sjúkraþjálfun.
-
Efla samstarf við heilbrigðisþjónustu með sérstaka áherslu á heimahjúkrun og þjónustu í nærumhverfi.
International Residents (Foreign Residents)
We believe that Þingeyjarsveit should be an inclusive community where everyone, regardless of background, can live, work and thrive. International residents are an important part of our society, our workforce and our future.
Our goals:
-
Ensure equal access to services, information and opportunities
-
Support integration while respecting cultural diversity
-
Strengthen participation of international residents in community life
Key actions:
-
Establish a Multicultural Council (New Residents Council) to give international residents a formal voice in local decision-making
-
Support Icelandic language learning opportunities in cooperation with educational institutions and employers
-
Encourage community events and meeting places that bring people together across cultures
-
Work with local employers to support onboarding and integration of foreign staff
-
Ensure access to leisure activities, sports and social life for all age groups
Þingeyjarsveit is a place for everyone. We welcome you, we listen to you, and we want you to be an active part of shaping our shared future.
Lokaorð
L-listi framfara ætlar að vinna fyrir alla íbúa Þingeyjarsveitar af ábyrgð, krafti og bjartsýni. Við ætlum stækka kökuna, fjölga tækifærum og gera gott sveitarfélag enn betra.
X-L — fyrir framfarir, samstöðu og sterka Þingeyjarsveit.
Lykiláherslur L-listans
Atvinnuuppbygging
Auka framboð atvinnu- og þjónustulóða, styðja við nýsköpun, efla lykilgreinar og störf án staðsetningar. Ætlum að taka jákvætt í hugmyndir íbúa um atvinnuuppbyggingu.
Fjölgun íbúa og húsnæðismál
Móta stefnu um og skipuleggja framtíðar uppbyggingu þéttbýlis í sveitarfélaginu. Skapa hagstæðari skilyrði til nýbygginga hvort heldur sem er í þéttbýli eða dreifbýli.
Ábyrg stjórnsýsla
Sterk og stöðug stjórnsýsla, með öflugan sveitarstjóra í fararbroddi og ábyrga meðferð fjármála.
Sterkari innviðir
Bæta grunnþjónustu sveitarfélagsins, aðgengi að heilbrigðisþjónustu, berjast fyrir fækkun malarvega, bæta veitukerfi, stuðla að aukinni orkuöflun og þrýsta á uppbyggingu brúa.
Skólar sveitarfélagsins
Auka samstarf og samkennslu milli grunnskóla, efla menntun og tryggja jafnt aðgengi barna að góðu skólastarfi.
Íþrótta- og tómstundamál
Íþrótta- og æskulýðsstarf er grunnstoð samfélagsins. Efla þarf aðstöðu félaga, styrkja rekstur þeirra, styðja við hreyfingu og félagsstarf fyrir fólk á öllum aldri.
Sterkara samfélag og samstaða
Sameinum samfélagið, byggjum upp eitt sterkt samfélag þar sem öll hafa rödd.
Nýting og vernd náttúru
„Verndum til að njóta.“ Göngum af virðingu um náttúruna og tryggjum íbúum aðgengi að henni.
Jákvæð uppbygging og samstarf
Stuðla að góðu samstarfi við íbúa, fyrirtæki og stjórnvöld - engin vandamál, bara lausnir
Betri nýting eigna og fleiri samverustaðir
Koma þarf meira lífi í fasteignir sveitarfélagsins og nýta þær betur fyrir starfsemi, samveru og atvinnu.