Maður er manns gaman!
- Soffía Jónsdóttir
- May 15
- 2 min read
Við í L-lista Framfara bjóðum allri Þingeyjarsveit í teiti föstudagkvöldið 15. maí í nýbyggðri skemmu í Bjarnaflagi í Mývatnssveit.
Við ætlum að bjóða upp á saltað hrossakjöt, uppstúf, kartöflur og öl á meðan birgðir endast. Við gerum væntingar um að minnsta kosti 100 matargesti!
Söngur, gleði og gamanmál er uppskrift kvöldsins. Míkrófónninn verður opinn þeim sem vilja grípa í hann en fyrst og fremst ætlum við að hittast og eiga skemmtilega kvöldstund saman í aðdraganda kosninga og fagna stórskemmtilegri kosningabaráttu síðustu mánuði.
Húsið opnar kl 20:00 og verður opið þar til fólki fer að leiðast.
Sjáumst hress í alvöru sveitaveislu. Mælum með að mæta í ullarpeysunni þó húsið sé upphitað og auðvitað velkomið að taka með sér eigin drykki líka.
Takk fyrir okkur og takk fyrir stuðninginn!
L-listi Framfara
--
We at the L-Listi Framfara invite all residents of Þingeyjarsveit to a celebration on the evening of Friday, May 15, in a newly built barn at Bjarnaflag in the Mývatn area.
We’ll be serving salted horse meat, white sauce (uppstúfur) potatoes, and beer while supplies last.
The microphone will be open to anyone who wants to take it, but above all, we want to come together and enjoy a great evening in the lead-up to the elections and celebrate the fantastic election campaign of the past few months.
Doors open at 8:00 PM and will stay open until people start getting tired of the fun.
We are looking forward to seeing everyone in good spirits at a real countryside party. We recommend wearing your wool sweater even though the venue is heated — and of course, you’re welcome to bring your own drinks as well.
Thank you from all of us on
L-Listi Framfara




Comments