Okkar fremsta fólk hefur hagsmuni samfélagsins og framtíð þess í fyrirrúmi.
1. Hallgrímur Páll Leifsson
"Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á sveitarstjórnarmálum. Síðasta kjörtímabil sat ég í atvinnumála og nýsköpunarnefnd auk þess sem ég var varamaður í skipulagsnefnd. Mér finnst gaman að geta gert samfélaginu til gagns og hef trú á að ég hafi nokkuð til málana að leggja. Ég sé fyrir mér aukin atvinnutækifæri bæði tengd núverandi atvinnuvegum auk þess sem nýsköpun mun færa okkur aukin tækifæri. Með aukinni atvinnu sé ég fyrir mér aukinn íbúafjölda sem mun styrkja samfélagið hvort sem litið er til sveitarfélagsins eða samfélagsins alls."
2. Freydís Anna Ingvarsdóttir
"Stærstu sigrarnir byrja oft með litlu hugrökku skrefi.."
3. Snæþór Haukur Sveinbjörnsson
"Ég bauð mig fram vegna þess að hér ætla ég að búa og ala upp börnin mín. Ég hef áhuga á sveitarstjórnarmálum og vil leggja mitt af mörkum til samfélagsins. Með sterku atvinnulífi getum við haldið úti öflugu sveitarfélagi með góðri þjónustu fyrir alla íbúa þess. Skólamál, íþrótta og tómstundamál standa mér einnig nærri. Það er ómetanlegt að búa í litlu og samheldnu samfélagi þar sem fólk er boðið og búið að hjálpa náunganum."
Stefnumál
L-Listi framfara er nýtt, borgaralegt framboð sem samanstendur af öflugum og reynslumiklum einstaklingum úr samfélaginu sem vilja leggja hönd á plóg. Markmið listans er að efla Þingeyjarsveit til framtíðar með aukinni atvinnuuppbyggingu, fjölgun íbúa – sérstaklega barnafjölskyldna – og sterkari innviðum.
Við trúum á tækifærin, samstöðuna og kraftinn í fólkinu – og viljum byggja upp enn sterkara samfélag fyrir alla íbúa Þingeyjarsveitar.

Fjölgun íbúa og húsnæðismál
Skapa hagstæðari skilyrði til að byggja og búa – sérstaklega fyrir barnafjölskyldur.
Ábyrg fjármál og stöðug stjórnsýsla
Aðhald í rekstri, lækka skuldir og tryggja stöðugleika í stjórnun sveitarfélagsins.


Nýting og vernd náttúru
„Verndum til að njóta“ – tryggja aðgengi að náttúru en um leið vernda hana til framtíðar.
Hafðu samband
Við viljum heyra frá þér!




