top of page

Freydís Anna skrifar skoðanapistil um skólamál

  • Writer: Soffía Jónsdóttir
    Soffía Jónsdóttir
  • Apr 20
  • 2 min read



Skólar gegna gríðarlega mikilvægu hlutverk í lífi barna, þar sem þau eyða mest megnis af degi sínum þar. Í Þingeyjarsveit er möguleiki á að skapa samstarf milli skóla þar sem fagfólk nýtir þekkingu sína og miðlar henni á milli skóla. Við viljum auka samkennslu á unglingastigi grunnskóla til þess að gefa þeim samrýmdari kennsluaðferðir og skapa jöfn tækifæri fyrir þau.

Þingeyjarsveit býr yfir miklu af góðu fagfólki og nauðsynlegt að deila á milli því sem virkar, læra hvert af öðru og skapa jákvætt samstarf með virðingu að leiðarljósi.

Menntun er miklu meira en einkunnir. Við segjum það oft, en hegðum okkur ekki alltaf í samræmi við það. Börn og ungmenni þurfa að fá að þróast sem manneskjur, ekki bara nemendur. Þau þurfa að læra að eiga samskipti, takast á við mistök, byggja upp sjálfstraust og finna sína styrkleika.

Tómstundir geta skipt sköpum í að nemendur finni sig. Því skiptir máli að félagsstarf, íþróttir eða skapandi starf séu aðgengileg fyrir börn og ungmenni. Þar myndast vináttur, sjálfsmynd og tilfinning fyrir því að tilheyra. Við eigum að taka þetta jafn alvarlega og námið sjálft. Við viljum að öll börn og ungmenni hafi jafnan aðgang að tómstundum og að það skipti ekki máli við hvaða aðstæður þau búa. Við þurfum að tryggja að þau fái jöfn tækifæri

Við viljum því byggja upp aðstöðu í íþróttahúsunum í sveitarfélaginu og styrkja íþróttafélögin sem við erum svo heppin að hafa. Jafnframt viljum við auka aðgengi að félagsmiðstöðvum fyrir ungmenni í sveitarfélaginu.

Að lokum snýst þetta um hvers konar samfélag við viljum byggja? Samfélag þar sem öll börn og ungmenni fá jöfn tækifæri til þess að vaxa og dafna, þar sem enginn dettur á milli.

Hjálpumst að og gerum hlutina saman.



- Freydís Anna Ingvarsdóttir Freydís Anna er bóndi og sjúkraflutningamaður með mikla reynslu af þjónustu við fólk og samfélag. Hún þekkir vel þarfir íbúa, bæði í dreifbýli og þéttbýli, og hefur sterka tengingu við heilbrigðis-, landbúnaðar- og ferðaþjónustumál.


Hún leggur áherslu á samvinnu, heiðarleika og að byggja upp samfélag þar sem allir fá að njóta sín. Freydís vill nýta krafta sína til að styrkja þjónustu, efla atvinnulíf og skapa betri aðstæður fyrir fjölskyldur í sveitarfélaginu.

 
 
 

Comments


Logo L-listans

+354 8476818

Setjum X við
L-lista framfara
16. maí 2026
Sjáumst í Þingeyjarsveit

  • Instagram
  • Facebook

 

© 2026 by Soffía Kristín Jónsdóttir

 

bottom of page