top of page

L-listi Framfara kynnir sveitastjóraefni sitt

  • Writer: Soffía Jónsdóttir
    Soffía Jónsdóttir
  • 1 day ago
  • 1 min read

L-listi Framfara í Þingeyjarsveit kynnir með stolti sveitastjóraefni listans, Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur eða “Lóu í Víðum” eins og hún er betur þekkt hér í sveit. Við fögnum því að Lóa hafi samþykkt að gefa kost á sér í þetta mikilvæga verkefni.

Þórdís Lóa Þórhalsdóttir


Þórdís Lóa býr yfir víðtækri og dýrmætri reynslu af stjórnun og rekstri sveitarfélaga, bæði sem oddviti í borgarstjórn undanfarin 8 ár og stjórnandi um árabil. Hún hefur í störfum sínum sýnt skýra sýn, festu í ákvarðanatöku og afburða samskiptahæfileika og getu til að leiða flókin verkefni til farsællar niðurstöðu.

Þórdís Lóa þekkir Þingeyjarsveit afar vel. Rætur hennar liggja í sveitarfélaginu, þar sem hún er frá Víðum í Reykjadal. Hún hlakkar nú til að flytja heim. Þekking hennar á svæðinu, fólkinu og þeim tækifærum sem þar felast er því bæði djúp og raunveruleg. 

Þórdís Lóa á Másvatni


L-listi Framfara leggur ríka áherslu á framfarir og festu í stjórnun sveitarfélagsins. Mikil og tíð sveitarstjóraskipti eru ekki til þess fallin að byggja upp sterkt og traust samfélag til lengri tíma. Með öflugum sveitarstjóra ætlar L-listinn að stuðla að auknum stöðugleika og tryggja öfluga forystu inn í nýjan kafla í sameinuðu sveitarfélagi.

Við teljum Þórdísi Lóu vera rétta leiðtogann til að leiða það verkefni.

Framundan eru spennandi tímar og við hlökkum til að eiga samtal við íbúa um framtíðina og þau fjölmörgu tækifæri sem framundan eru.

 
 
 
Logo L-listans

+354 8476818

Setjum X við
L-lista framfara
16. maí 2026
Sjáumst í Þingeyjarsveit

  • Instagram
  • Facebook

 

© 2026 by Soffía Kristín Jónsdóttir

 

bottom of page